lestrarapp
Þjálfaðu þig í lestri og lesskilningi
eitt skref í einu.

Fáanlegt á tækjum
Heimalestur sem styður nemandann á hverju stigi!
Yfir 9 mismunandi þyngdarstig sem tryggja að sérhver nemandi finni texta við hæfi og nái raunverulegum framförum.
Tafarlaus endurgjöf og gagnvirk verkefni sem dýpka lesskilning og gera námið skemmtilegra.
Fjölbreytt úrval af vönduðu lesefni sem er sérstaklega valið til að kveikja áhuga barna á öllum aldri.
Lestrarappið
Við á Skólavefnum bjóðum nú upp á glænýtt app, Heimalestur, til að þjálfa nemendur í lestri og lesskilningi. Í appinu er að finna á annað þúsund fjölbreyttra texta sem flokkaðir eru niður í níu erfiðleikastig. Appið er einfalt og auðvelt í notkun og hægt er að virkja sérstakan aðgang fyrir foreldra svo þeir geti betur tekið þátt í náminu. Hér er á ferðinni einstök leið fyrir nemendur til að þjálfa sig í lestri og lesskilningi.

Já, nú geta nemendur hvenær sem er og hvar sem er lesið vandaða texta til að þjálfa bæði lestrarfærni og lesskilning. Appið hentar öllum símum og öllum tölvum og er því á margan hátt óháð stað og stund.
Eins og áður sagði eru textarnir flokkaðir eftir því hve erfiðir þeir eru. Boðið er upp á níu stig eða þrep sem nemendur geta valið um. Í upphafi prófa nemendur sig áfram til að finna það stig sem hentar þeim best og halda svo ferðinni áfram þaðan. Til viðmiðunar má segja að hvert stig samsvari viðeigandi árgangi.
Öllum textum fylgir einhvers konar verkefni sem sýna að nemandinn hefur lesið textann. Eru þau mis flókin eftir stigum og geta falist í því að raða orðum í rétta röð, velja rétt orð í eyðu, svara krossaspurningum úr efninu svo eitthvað sé nefnt. Nemandi er látinn vita ef svar hans er rangt með rauðum kassa en ef og þegar hann svarar rétt fær hann viðeigandi viðurkenningu.
Textarnir eru fjölbreyttir og innihaldsríkir og hafa mikið fróðleiksgildi, þ.e. þeir fjalla um eitthvað sem skiptir máli og nemendur hafa gaman af að vita. Og innan hvers stigs eru ólíkir textar sem nemendur geta valið úr, allt eftir því á hverju þeir hafa áhuga.
Appið mun bjóða upp á nýtt efni reglulega þannig að enginn hætta er á að nemandinn ljúki við textana í boði. Það verður af nógu að taka.
Appið er einstaklega auðvelt í notkun og leiðin að textunum mjög stutt og aðgengileg. Auðvelt er að sjá hvaða lestra nemandinn hefur lesið. Nemandi velur sér texta til að lesa, síðan er smellt á „Hefja lestur" og svo þegar textinn hefur verið lesinn er smellt á „Ég hef lesið textann" og þaðan er svo farið í það verkefni sem fylgir textanum en verkefnin geta verið mismunandi.
Í appinu er boðið upp sérstakan aðgang fyrir foreldra til að þeir geti stutt við börn sín í ferlinni og fylgst með árangri þeirra og framför. Teljum við slíkt mjög mikilvægt ekki síst á yngri stigum.