Að byrja í Heimalestri

Fjögur skref.

  1. Skráðu þig inn

    Með netfanginu þínu.

    Innskráning
    Nánar

    Notaðu netfangið sem skólinn skráði þig með. Virki innskráningin ekki þarftu fyrst að eiga aðgang á Heimalestri — umsjónarmaður skólans getur svo bætt þér við skólann.

  2. Stofnaðu bekk

    Smelltu á „Nýr bekkur“ og gefðu honum nafn.

    Mælaborðið
    Nánar

    Þú mátt búa til eins marga bekki og þú vilt, til dæmis einn fyrir hvern árgang eða lestrarhóp. Nemandi þarf ekki að vera í bekk til að geta lesið — bekkurinn heldur bara utan um hópinn.

  3. Bættu við nemendum

    Eitt nafn í einu. Hver nemandi fær boðskóða.

    Nýr nemandi
    Nánar

    Þú skráir fornafn, eftirnafn, gælunafn sem birtist í appinu og bekkjarstig, og velur bekk ef þú vilt. Boðskóðinn býr til sig sjálfur um leið. Hann er alltaf aðgengilegur aftur inni á nemandanum, og þar getur þú búið til nýjan kóða eða afturkallað þann sem er í gildi.

  4. Gefðu nemandanum kóðann

    Hann slær kóðann inn í appið og velur mynd og lykilorð. Ekkert netfang.

    Nánar

    Kóðinn er sex stafir og inniheldur hvorki 0, 1, I, O né L, svo ekki sé hægt að ruglast á þeim. Nemandinn sækir appið, slær kóðann inn og velur sér mynd og fjögurra stafa lykilorð. Þú þarft hvorki að gefa honum netfang né lykilorð. Kóðinn gildir í 30 daga.

Foreldrarnir

Þú þarft ekki að skrá foreldra sérstaklega. Sami boðskóði og barnið notar virkar líka fyrir þau — sendu hann bara heim.

Foreldrið sækir appið, slær sama kóðann inn og sér þá lesturinn hjá barninu sínu.

Nánar

Hvern kóða má nota fjórum sinnum: einu sinni fyrir nemandann sjálfan og svo fyrir foreldra eða aðra í fjölskyldunni. Hann gildir í 30 daga. Klárist hann eða renni út býrð þú einfaldlega til nýjan inni á nemandanum.

Tölurnar á mælaborðinu

Samtals nemendur
Allir nemendurnir þínir.
Bekkir og hópar
Bekkirnir sem þú hefur stofnað.
Lestrardagar / viku
Hvað bekkurinn las marga daga í vikunni, af fimm.
Þarf athygli
Nemendur sem hafa dregið úr lestri. Kíktu hér fyrst.

Lestrartölur byrja upp á nýtt í hverri viku.

Flýtileiðir

Vantar aðstoð? Hafðu samband við umsjónarmann skólans þíns.