Við höfum nýlega gefið út nýtt app fyrir iOS og Android. Eins og stendur er nýjasta Android-útgáfan enn í samþykktarferli hjá Google Play, sem getur stundum tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir.
Því er Android-appið sem nú er aðgengilegt í raun beta-útgáfa, sem þýðir að það er í lokaprófun og ekki alveg fullklárað enn. Sumir notendur gætu því orðið varir við smávægileg atriði sem verða lagfærð mjög fljótlega.
Við vinnum nú að síðustu lagfæringum og stefnum á að uppfærð og fullkláruð Android-útgáfa verði tilbúin á næstu dögum, um leið og samþykktarferli Google Play lýkur.
Allir sem hafa keypt appið fá uppfærsluna sjálfkrafa þegar hún verður aðgengileg.
Við þökkum kærlega fyrir þolinmæðina á meðan við klárum síðustu skrefin og tökum alltaf vel á móti ábendingum frá notendum.
Takk fyrir stuðninginn!
Kær kveðja,
Skólavefurinn.is